top of page
1U7A4556.jpg
logo4.png

Í HJÓLASKÚRNUM ER BOÐIÐ UPP Á ALHLIÐA VIÐGERÐIR Á GÖTU- OG FJALLAHJÓLUM Á AKUREYRI

1U7A4643.jpg

Þórhallur Kristjánsson

„Í upphafi 10. áratugarins voru sárafáir að fást við viðgerðir og viðhald reiðhjóla sem gerði það að verkum að ég fann mig knúinn til að finna út úr því sjálfur sem aflaga fór.

Haustið 2019 fór ég svo til Englands í nám í reiðjólaviðgerðum. Skólinn sem ég sótti þar heitir Cycle Systems Academy og það kom skemmtilega á óvart hversu yfirgripsmikið námið var. Meðal annars var farið yfir dempara, gjarðasmíði, vökvabremsur og bæði rafdrifin drifbúnað og hefðbundin, svo fátt sé nefnt.

Núna hef ég komið mér upp litlu en vel búnu verkstæði í bílskúrnum mínum að Laugargötu. Ég á til helstu varahluti, svo sem víra, barka, keðjur, bremsuklossa, „bartape“ og sitt hvað fleira. Ég býð að auki upp á að aðstoða viðskiptavini við að panta það sem kann að vanta umfram mínar lagerbirgðir."

Þessi umsýsla kostar kr. 8.600-. Klukkustund á verkstæði kostar 8.600,- Hraðþjónusta kostar 14.990,-

HAFÐU SAMBAND
 

1U7A4731.jpg

893 3262

bottom of page